Hæ!!
Þetta er Heiður, ég er
gestabloggari hérna í dag.. Takk fyrir, takk!
Helga: klapp klapp
klapp!!
En jæja, snúum okkur að
blogginu. Nana er svo fjandi löt við að blogga, þó hún hangi nú í
tölvinni tuttuguogfjórir sjö..! Óskiljanlegt. Þannig að ég ákvað í
gær að taka bara málið í mínar hendur.
Í gær.. í gær. Hvað
gerðuð þið í gær? Í gær var sunnudagur, meðan ég man. Ef ég á að
vera alveg hreinskilin þá verð ég að segja ykkur að ég hata
sunnudaga. Alveg gjörsamlega sko! Ég get svo svarið það! Vanalega
eyði ég hálfum sunnudeginum í að læra og hinum helmingnum í það að
velta mér upp úr sjálfsvorkunn, hvað það er nú leiðinlegt að það sé
sunnudagur - og þar eftir hendi. Ójá.
En í gær ákvað ég að
taka mig taki og gera eitthvað uppbyggjandi, eitthvað sem myndi mig
fá til að hætta að röfla svona og veina.
Já, ég ákvað að fara að
laga til inni í herberginu okkar. Ekki veitti af, orðið frekar
mikil óreiða eftir síðustu 3 vikur af lærdómshelvíti.
Ég byrjaði klukkan fimm
og lauk verkinu klukkan tvö síðla nætur.
Það var sko allt tekið í
gegn, fataskápurinn (ég henti öllum fötunum út og braut saman
aftur, raðaði svo öllu upp á nýtt - líka Nönu fötum takið eftir),
skóladótið (já, skóladótið lá allt í hrúgu víðsvegar um gólfið og
ég tók það allt til og raðaði flott), snyrtidótið (aðallega Nönu
drasl) og miklu miklu meira..
Ég var bara alveg á
fullu og var að deyja í bakinu eftir á.
En damn, it sure feels
good.. sko, að vera búin að þessu.
En, ég ætlaði nú ekkert
að fara að blogga svona mikið um hvað ég var dugleg að laga til í
gær.. Ég ætlaði frekar að segja frá því hvað Nana er erfið
viðureignar!
Hún var nú bara að læra
allan tímann, enda erfitt próf sem hún fór í í morgun, en hún kom
samt annaðslagið inn að kíkja á mig og hjálpa.
En vandamálið með hana
Nönu er að hún verður alltaf að eiga ALLT, það má ekki henda NEINU.
Gvuuuuuð.. *pirr*
Það skiptir ekki máli
hvort það sé brotið gloss, gamalt bréf, elgamalt afmæliskort,
glósur úr grunnskóla eða nafnspjald síðan hún var í Bandaríkjunum..
Neibb, EIGA ÞETTA ALLT!
Alveg ótrúleg, og á
köflum einstaklega fyndið.. Þess vegna var eiginlega fínt að vera
bara ein þarna að dunda sér, ég gat bara hent öllu sem ég vildi..
hehe! 
En, Nana á náttborð. Og
í náttborðinu er skúffa. Ég er búin að vera að skipa henni að taka
þessa skúffu í gegn, núna í hva.. nokkra mánuði, og hún alltaf
bara: jájá, ég fer alveg að fara að gera það..
Ástæðan er sú að það
mátti aldrei opna þessa skúffu því þá datt dótið úr henni og ef ég
ætlaði eitthvað að hreinsa í henni þá varð Nana brjáluð því allt
var svo merkilegt í henni.
En í gær þá tók ég mig
bara til fyrst ég var búin að vera að taka allt í gegn á annað borð
og réðst á þessa skúffu!! Djöfulsins drasl! Annað eins hef ég ekki
séð.. lengi! Og allt svona drasl sem má fara beint í ruslið. Sem og
það gerði. En allt í einu kom Nana inn rosa glöð og happy en brosið
fraus þegar hún sá að ég var í skúffunni.. "AHHH.. ERTU Í
SKÚFFUNNI?!?!?!?!"
Geðveikt brjáluð..
hehe!
Ég var komin langt á veg með að henda nánast öllu og hún
reif pokann af mér og gramsaði í honum alveg á fullu.. þvílík
dúlla. Tók svo fullt upp úr honum og sagði alltaf: EIGA, EIGA,
EIGA.. Hehehe..
Æjjjj hún er bara svo
erfið!
Passið ykkur, hehe! 
Kveðja,
Heyja NoN ErfiðA !!

P.S. - Nana bloggar
örugglega strax í kvöld, bara til þess að losna við þessa færslu..
hehehe! 